Kjúklingabauna salat

Hollt og gott kjúklingabauna salat. Engin ástæða að fylgja uppskriftinni nákvæmlega og auðvelt að skipta hráefnum út fyrir önnur sem til eru í skápunum. Í stað blómkáls má nota tofu, sveppi eða úrbeinuð kjúklingalæri eins og sjá má á myndinni. Með góðu brauði gæti þetta verið passlegt fyrir sex.

Þú þarft:

  • 600 gr blómkál
  • 6 egg
  • 1 pk brotnar kasjúhnetur
  • 2 dósir kjúklingabaunir
  • 1 sítróna
  • 5 vorlaukar
  • 1 pk kirsuberjatómatar
  • 1 paprika
  • 1 pk salat
  • Ferskar kryddjurtir
  • Grísk jógúrt
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Harðsjóðið eggin og takið af skurnina. Skerið grænmetið eða kjúklinginn í munnbita og kryddið með salti, pipar og t.d. garam masala. Steikið fallega brúnt á pönnu. Þurrsteikið hneturnar í pönnu eða potti.
  2. Skolið baunirnar vel og þerrið. Skerið grænmetið niður og rífið salatið og kryddjurtirnar. Ég notaði hálft box af myntu og hálft box af steinselju. Blandið þessu saman í skál, ásamt safa og berki af einni sítrónu og nokkrum matskeiðum af grískri jógúrt.
  3. Setjið steikta grænmetið eða kjúklinginn efst, ásamt hnetum og eggjum.
  4. Berið fram með grískri jógúrt og góðu brauði.

Mynd: Pálmi Jónasson

Related posts

Verkir minnka um 42% á Heilsustofnun

Lífsgæði aukast verulega í Hveragerði

Konur í miklum meirihluta