Áfengi, sykur og hvítt hveiti er á bannlista Lionels Messi en mataræði hans er í grundvallaratriðum það sama og Jónas Kristjánsson læknir boðaði fyrir nærri öld síðan. Mataræðið hjálpaði Jónasi að vera í fullu fjöri til níræðs en hann opnaði Heilsuhælið í Hveragerði 85 ára árið 1955. Lionel Messi hefur verið besti knattspyrnumaður heims í tvo áratugi og er enn í fullu fjöri á HM, 39 ára gamall.
Lionel Messi var undrabarn í fótbolta en glímdi við þrálát meiðsli upp úr tvítugu. Þá kom næringarfræðingurinn Giuliano Poser til sögunnar og breytti mataræðinu. Síðan hefur Messi varla þurft að glíma við meiðsli og ferillinn er enn í fullu fjöri þótt hann sé að verða fertugur.
Á unga aldri hugsaði Messi lítið um mataræði en hann er alinn upp við mat eins og Asado sem er grillað nautakjöt og Milanesa sem er kálfakjöt í raspi. Pítsur og pasta voru í miklu uppáhaldi og hann átti erfitt með að neita sér um ís, súkkulaði og argentínska karamelluna Dulce de leche. Messi segir að svona mat geti maður látið ofan í sig 18 eða 19 ára en það gangi ekki fyrir 27 ára íþróttamann.
Á miðjum þrítugsaldri urðu síendurtekin meiðsli til þess að Lionel Messi endurskoðaði þjálfunaraðferðir sínar, lagði áherslu á góðan svefn og síðast en ekki síst breytt mataræði þar sem áhersla er lögð á hreinan, heilnæman og næringarríkan mat. Giuliano Poser kom til sögunnar árið 2014 og gerbreytti mataræðinu. Ferskar matvörur og vatnsdrykkja í lítravís komu í staðinn fyrir unnar matvörur, hvítt hveiti og einkum og sér í lagi sykur sem Poser segir að sé algjört eitur fyrir vöðvana.
Giuliano Poser segir að það séu fimm lykilhráefni sem séu undirstaðan í næringaráætlun Lionels Messi.
- Vatn
- Ólífuolía
- Heilkornavörur
- Ferskir ávextir
- Ferskt grænmeti
Þessi næringarríku og auðmeltanlegu hráefni er undirstaða orkuforða Messi. Poser mælir einnig með hnetur og fræjum fyrir holla fitu, steinefni og viðvarandi orku yfir daginn. Poser leggur mikla áherslu á hrámeti, óeldað grænmeti og ávexti sem eru hlaðin ensímum, trefjum og andoxunarefnum sem halda Messi orkumiklum en léttum á fæti.