Svartfuglsegg með Peccorino Toscano

Svartfuglsegg eru lostæti og með góðum söltuðum osti eru þau tær snilld. Hér með Peccorino Toscano sem ég fékk í ostaborðinu í Hagkaup í Kringlunni. Svartfuglseggin fékk ég í Melabúðinni. Parmaskinkan er bara þarna á myndinni af því að ég átti þessa fínu 24 mánaða Serrano skinku.

Þú þarft:

  • Svartsfuglsegg
  • Peccorino Toscano

Aðferð:

  1. Sjóðið svartsfugleggin í 7-8 mínútur.
  2. Skerið svartsfuglseggin í tvennt því skurnin er svo flott á diski.
  3. Rífið yfir vel af parmesan osti og piprið.

Myndir: Pálmi Jónasson.

Related posts

Sykur og hvítt hveiti á bannlista Lionels Messi

Opna Heilsumótið í Hveragerði 19. júlí

„Mikilvæg viðurkenning á starfi Heilsustofnunar“