Svartbaunaborgari með kotasælusósu

Þessar uppskriftir eru teknar úr uppskriftarbók Heilsustofnunar NLFÍ í  Hveragerði. Þetta er flottur valkostur fyrir þá sem vilja minnka kjötátið og fá sér samt bragðgóðan borgara með góðu meðlæti. Frábært er að bera þetta fram með niðurskornu fersku grænmeti að vild og ofnbökuðum skornum sætum kartöflum. Eða bara eins og venjulegan hamborgara eins og á myndunum hér að neðan en þá er betra að draga vel úr eða jafnvel sleppa AB mjólkinni í kotasælusósunni. Verið óhrædd að nota í buffin þær fersku kryddjurtir sem þið eigið.

Þú þarft:

  • 1/2 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 dósir svartar baunir
  • 2 msk ferskt kóríander
  • 2 msk steinselja
  • 1 egg
  • 1/2 tsk chiliduft
  • 200 g haframjöl
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Laukur og hvítlaukur skorið smátt eða maukað í matvinnsluvél. Öllu blandað saman í skál. Deigið á að vera þétt og kannski þarf að bæta við örlítið meira af mjöli.
  2. Mótið buff og steikið á pönnu eða eldið í ofni í 10-15 mínútur við 180-200 gráður.

Kotasælusósa:

  • 1/2 lítri AB mjólk
  • 1 lítil dós kotasæla
  • 1-2 pressuð hvítlauksrif
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Öllu blandað saman og smakkað til með salti og pipar.

Myndir: Halldór Steinsson og Pálmi Jónasson.

Related posts

Áhrif umhverfis á andlega heilsu

Sykur og hvítt hveiti á bannlista Lionels Messi

Opna Heilsumótið í Hveragerði 19. júlí