Súrkál er frábær matvara til að viðhalda góðri þarmaflóru og meltingarstarfssemi. Þessi uppskrift er frá Halldóri Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.
Þú þarft:
- 1 kg rifið hvítkál
- 1 fínt skorið fennel
- 1 grænt epli rifið með hýði
- 1 tsk kúmen
- 40 g gott sjávarsalt
Aðferð:
- Öllu blandað saman og nuddað þangað til blandan er orðin frekar blaut.
- Svo er allt sett í krukku, passa að vökvinn nái yfir allt kálið pressa það niður af og til og látið standa í stofuhita í minnst 3 daga, lengur fyrir þá sem vilja meira súrt.
- Geymist á kæli endalaust.
Verði ykkur að góðu!