Lauksúpa að hætti Ottolenghi

Ottolenghi með eigin útgáfu af franskri lauksúpu með kjúklingabaunum og Hawaij kryddblöndu frá Jemen. Verið óhrædd við að aðlaga uppskriftina að eigin eldhúsi. Ég átti basilíku í glugganum en ekki kóríander og fenugreekfræ voru ekki til í kryddskápnum. Eins og venjulega spurði ég Google um „Fenugreek replacement“ og fékk sinnepsfræ sem voru notuð í staðin. Ég átti ekki alveg svona mikinn lauk og sjálfur nota ég eingöngu ósaltað smjör. Baunir þarf að skola vel og rækilega. Ostablandan í uppskriftinni er yfirdrifin á brauðið svo ég notaði afganginn sem skraut á súpuna. Uppskriftin passar fyrir fjóra.

Þú þarft:

  • 50 g ósaltað smjör
  • 2 msk ólífuolía
  • 250 g tómata passata
  • 30 g ferskt kóríander
  • 1 dós kjúklingabaunir
  • 1,5 l kjúklinga- eða grænmetissoð
  • Salt og pipar

Kryddblanda:

  • 1 msk kóríanderfræ
  • 2 tsk cumminfræ
  • 2 negulnaglar
  • 6 kardimommur (fræin)
  • 1/2 tsk fenugreekfræ
  • 1/2 tsk túrmerik

Ostabrauð:

  • 220 g cheddar ostur
  • 10 g ferskt kóríander
  • 1 stór hvítlauksgeiri
  • 6 sneiðar súrdeigsbrauð
  • 15 g ósaltað smjör
  • 1 msk sinnep

Aðferð:

  1. Skerið laukinn í þunnar sneiðar og látið malla í olíu og smjör í klukkustund. Hrærið á 5-10 mínútna fresti og leyfið honum að brúnast vel.
  2. Steikið kryddfræin á meðan í potti í 5 mínútur og blandið svo saman í morteli með túrmerik.
  3. Þegar laukurinn er orðinn vel karmeliseraður er kryddblöndunni bætt við, tómata passata og fersku kryddi. Leyft að malla í 5 mínútur. Þá er baunum, soði og vel af salti og pipar bætt saman við og soðið áfram í um hálftíma.
  4. Ofninn er stilltur á grill og osturinn rifinn í skál með fersku kryddi, hvítlauk og pipar.
  5. Þegar súpan er nánast tilbúin er brauðið sett undir grillið í um eina mínútu. Brauðsneiðunum er þá snúið og smurðar með sinnepi og smjöri og ostablandan þar ofaná. Grillað í 3-4 mínútur í viðbót og hver sneið skorin í þrjá bita.
  6. Súpan sett í diska, ostabrauð og aukaostur yfir súpuna. Borið fram með restinni af ostabrauðinu og aukaosti í skál.

Mynd: Pálmi Jónasson.

Related posts

Samsetning máltíða – Notum öll orkuefnin

Streita, áföll og taugakerfið

Taktu þátt og segðu okkur hvað hentar þér!