Betrumbætt heimasíða NLFÍ

Heimasíða Náttúrulækningafélagsins hefur verið uppfærð og betrumbætt verulega í samræmi við umtalsvert meiri notkun síðunnar. Útlit síðunnar hefur tekið miklum breytingum með nýrri útgáfu af merki Náttúrulækningafélagsins og sérstökum hnappi fyrir þá sem vilja gerast félagar í Náttúrulækningafélaginu. Fréttum í hlaðborðinu efst hefur verið fjölgað úr fjórum í sex og vinsældalistinn hægra megin á síðunni uppfærist reglulega í takt við hvaða færslur er mest skoðaðar. Þá hefur ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis fengið sérstakan sess á forsíðunni.

Við vekjum sérstaka athygli á uppskriftavefnum þar sem finna má fjölmargar hollar og góðar uppskriftir. Uppskriftavefurinn er undir flipanum „uppskriftir“ sem er efst á heimasíðunni nlfi.is.

Related posts

Af hverju er ekkert kjöt?

„Endurhæfing verði sjálfsagður hluti heilbrigðisþjónustunnar“

„Endurhæfing einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustu“