Grasaferð í Heiðmörk á þriðjudag


Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir fer með félagsmenn í grasaferð í Heiðmörk þriðjudaginn 23. júní og fræðir um algengar íslenskar lækningajurtir sem nota má til heilsubótar sem te, krydd eða til matargerðar. Þá er Jónsmessunótt og jurtirnar komnar vel á veg í blóma.

Staðsetning: Hist er við fyrsta bílastæði á hægri hönd við Rauðhóla

Tími: Þriðjudaginn 23.júní kl.17:30 – 19:00

Almennt verð: 3500 kr

Skráning á netfangið nlfi@nlfi.is

Frítt fyrir félagsmenn NLFR

Related posts

„Stór hópur fólks sem lendir í kulnun eða örmögnun“

Ætihvönn í allan mat!

Áhrif umhverfis á andlega heilsu