Félagsgjöld í heimabanka

www.heilsustofnun.is

Félagar í Náttúrulækningafélagi Reykjavíkur fengu í dag greiðsluseðla inn á heimabanka sína fyrir árgjaldinu. Gamla kerfið hefur aðeins boðið upp á eina dagsetningu og því hafa öll félagsskírteini gilt frá 1. júlí til 30. júní. Í dag var tekið í notkun nýtt kerfi sem býður upp á mun fleiri möguleika og er að miklu leiti sjálfvirkt.

Eldri skírteini í veskisöppum eiga að uppfærast um mánaðamótin eða þegar gildistími nýja skírteinisins hefst. Að því gefnu að félagsgjaldið sé greitt. Nýir félagar fá tölvupóst með hlekk á skírteinið þegar áskrift hefst við greiðslu árgjaldsins.

Related posts

Grasaferð í Heiðmörk á þriðjudag

Betrumbætt heimasíða NLFÍ

Lauksúpa að hætti Ottolenghi