Innbakað blómkál með sinnepi og cheddar

Innbakað blómkál að hætti Ottolenghi með sinnepi og cheddar. Stórbrotin máltíð sem passar fyrir 6 með einhverju á kantinum. Verið óhrædd að breyta uppskriftinni. Notið það krydd sem þið eigið og finnst gott og ostinn sem til er í skápnum. Stærð smelluformsins er ekki lykilatriði.

Þú þarft:

  • 1 blómkál
  • 2 tsk karrýduft
  • 3 msk ólífuolía
  • 100 g ósaltað smjör
  • 75 g hveiti
  • 675 ml mjólk
  • 2 hvítlauksrif
  • 1,5 msk sinnep
  • 150 cheddar
  • 6 blöð filo deig
  • Salt og pipar
  • 1 msk steinselja
  • 1,5 tsk limebörkur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180 gráður. Skerið blómkálið í munnbita og kryddið með karrý, hálfri teskeið af salti og vel af pipar. Bakið í helmingnum af olíu í ofni í 20 mínútur. Takið blómkálið til hliðar og lækkið ofninn í 170 gráður.
  2. Béchamel sósan er gerð þannig að smjörið er brætt í potti og hveiti bætt við. Látið þetta malla í 2-3 mínútur eða þar til kemur létt hnetulykt. Lækkið hitann og bætið mjólkinn smám saman við og pískið vel í um 7 mínútur eða þar til þetta hefur þykknað. Takið af hitanum og bætið við hvítlauk, sinnepi, osti og örlitlu salti. Blandið sósunni og blómkálinu saman.
  3. Smyrjið 23 sentimetra smelluform með smjöri og hveiti eða með bökunarpappír. Leggið filóblöðin í formið og smyrjið hvert lag með bráðnu smjöri. Leggið þær á víxl þannig að þær geti lokast jafnt. Hellið blómkálsblöndunni ofan á filo deigið og flettið því af deiginu sem út af stendur yfir blómkálið. Penslið yfir með bráðnu smjöri og bakið í ofninum í 30 mínútur.
  4. Losið hliðarnar af smelluforminu og bakið áfram í 20-25 mínútur. Látið kólna í 15 mínútur.
  5. Skreytið með fersku kryddi og límónuberki.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Félagsgjöld í heimabanka

Grasaferð í Heiðmörk á þriðjudag

Betrumbætt heimasíða NLFÍ