Stórbætt heimasíða Náttúrulækningafélagsins

Heimasíða Náttúrulækningafélagsins hefur nú verið uppfærð í tvígang og betrumbætt verulega í samræmi við umtalsvert meiri notkun síðunnar. Útlit síðunnar hefur tekið miklum breytingum með nýrri útgáfu af merki Náttúrulækningafélagsins og sérstökum hnappi fyrir þá sem vilja gerast félagar í Náttúrulækningafélaginu. Fréttum í hlaðborðinu efst hefur verið fjölgað úr fjórum í sex og vinsældalistinn hægra megin á síðunni uppfærist reglulega í takt við hvaða færslur er mest skoðaðar. Þá hefur ævisaga Jónasar Kristjánssonar læknis fengið sérstakan sess á forsíðunni.

Við vekjum sérstaka athygli á uppskriftavefnum þar sem finna má fjölmargar hollar og góðar uppskriftir. Uppskriftavefurinn er undir flipanum „uppskriftir“ sem er efst á heimasíðunni nlfi.is og í dálkinum vinstra megin birtast gamlar og góðar uppskriftir sem safnast hafa upp á umliðnum árum. Verði ykkur að góðu!

Svona leit heimasíðan út fyrir breytingar:

Related posts

Grasaferð í blíðviðri í Heiðmörk

Innbakað blómkál með sinnepi og cheddar

Félagsgjöld í heimabanka