Kartöflusalat með radísum, strengjabaunum, dilli og radísuspírum

Hollt og gott kartöflusalat úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Matstofu Jónasar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.

Kartöflusalat:

  • 500 g kartöflusmælki
  • 300 g radísur
  • Handfylli radísuspírur
  • 300 g strengjabaunir
  • Handfylli saxað dill
  • 3 msk skyr
  • 3 msk sýrður rjómi
  • 2 tsk grófkorna sinnep
  • Safi úr ½  sítrónu
  • 1 msk hlynsíróp
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Sjóðið smælkið í saltvatni og kælið.
  2. Hitið vatn að suðu og sjóðið baunirnar í 30 sekúndur og setjið svo í klakavatn. Skerið radísurnar í fernt.
  3. Blandið svo öllu saman og stráið svo radísuspírunum yfir.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Einfalt malasískt karrý

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime