Heilsuremúlaði frá Heilsustofnun

Heilsuremúlaði er að finna í heilsuppskriftabæklingi Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Þetta remúlaði er frábært með fiski í raspi, með smurbrauði eða sem ídýfa með niðurskornu grænmeti.

Þú þarft:

  • 500 g skyr
  • 200 ml AB mjólk
  • 4 msk sætt sinnep
  • 4-5 smátt skornar súrar gúrkur
  • 4-5 msk saxað kapers
  • 1 smátt skorinn laukur
  • 1 söxuð rauð paprika
  • Fersk dill
  • Sítrónusafi
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Öllu blandað saman og smakkað til með salti og pipar.

Related posts

„Stór hópur fólks sem lendir í kulnun eða örmögnun“

Ætihvönn í allan mat!

Áhrif umhverfis á andlega heilsu