Grænmetishleifur

Grænmetishleifur með gulrótum og möndlum úr smiðju Halldórs Steinssonar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Passar vel með nánast hvaða meðlæti sem er.

Þúr þarft:

  • 200 g ósoðnar rauðar linsur
  • 300 g rifnar gulrætur
  • 200 g rifnar sætar kartöflur
  • 200 g rifin sellerírót
  • 100 g smátt skorinn blaðlaukur
  • 150 g ristaðar möndluflögur
  • 4 msk tómatpúrra
  • 3 pressuð hvítlauksrif
  • 2-3 msk mangó chutney
  • 1-2 tsk grænmetiskraftur
  • 2 tsk túrmerik
  • 2 msk saxað kóríander
  • 1 tsk cumminduft
  • 1/4 tsk cayenne pipar
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Byrja á því að sjóða linsurnar í potti með lárviðarlaufi og smá grænmetiskrafti. Steikja allt rótargrænmeti, blaðlauk, hvítlauk og krydd þangað til það er meyrt og færa það yfir í skál blanda saman við linsurnar, mangóchutney, tómatpúrru, grænmetiskraft og síðast möndluflögur salt og pipar.
  2. Blandan á að vera heldur þétt í sér ef hún er of blaut má bæta við dálitlu af haframjöli eða bókhveitimjöli. Sett í smurt jólakökuform og bakað í ofni við 190 gráður í 25-30 mínútur.

Mynd: Halldór Steinsson

Related posts

Grasaferð í Heiðmörk – Myndir

Grasaferð í blíðviðri í Heiðmörk

Stórbætt heimasíða Náttúrulækningafélagsins