Undanfarin ár hef ég verið að rækta matjurtir í litla bakgarðinum mínum í Kópavogi. Það er ótrúlega gefandi að fylgjast með grænmetinu vaxa og geta náð sér í sitt eigið grænmeti í bakgarðinn yfir sumarið. Þetta pestó er frábært með góðu brauði eða hrökkbrauði. Grænkál er ekki hitaeiningarík en mjög ríkt af K-vítamíni, A-vítamíni, C-vítamíni, B-vítamínum, járni, kalki, kalíum og magnesíum.
Grænkálspestó
- 4 greinar grænkál
- 3 hvítlauksrif
- Lúka af valhnetum
- Vöndur af steinselju
- Vænn biti parmesan
- Salt og pipar
Aðferð:
- Öll hráefnin eru sett í matvinnslu vél og maukað vel saman. Töfrasproti notaður í lokin til að ná að mauka enn betur saman.
- Það þarf að nota vel af matarolíu því annars verður pestóið of þurrt. Ef hvítlaukurinn verður of yfirgnæfandi í bragðinu má nota meira af parmesan ostinum eða hnetunum. Ég notaði valhnetur en hef líka séð uppskriftir með furuhnetum. Svo er bara að nota salt og pipar í lokin til að tryggja það bragð sem þið viljið.
Verði ykkur að góðu!