Eplabaka með hnetum og döðlum

Eplakaka með hnetum og döðlum sem Solla á Gló deildi með lesendum Náttúrulækningafélagsins. Heimagert marsípan og eplafylling með engum viðbættum sykri. Skreytið að vild með ávöxtum og berjum.

Bökubotn:

  • 4 dl kókosflögur
  • 3 dl pekanhnetur
  • 2 dl döðlur, smátt saxaðar
  • 1 dl mórber
  • 1 tsk vanilla, duft eða dropar
  • 1/8 tsk sjávarsalt

Aðferð:

  1. Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman. Deigið er tilbúið þegar það klístrast saman.
  2. Skiptið deiginu í fernt. Notið fjögur 10-12 cm bökuform með lausum botni. Þrýstið niður í formin og setjið inn í frysti á meðan verið er að búa til marsipanið. Hægt er að nota eitt 23/26 cm bökuform í staðin fyrir fjögur lítil.

Marsípan:

  • 150 g heslihnetur, malaðar fínt
  • ¼ tsk salt
  • ½ dl agavesýróp
  • 1 tsk vanilludropar eða duft
  • ½ dl kókosolía eða kakósmjör
  • 6-8 möndludropar

Aðferð:

  1. Setjið allt nema kókosolíu/kakósmjör í matvinnsluvélina og blandið mjög vel saman. Bætið við kókosolíu eða kakósmjöri og klárið að blanda.
  2. Skiptið marsipaninu í fernt og setjið lag yfir hvern botn.

Eplafylling

  • 1 ¼ dl möndlur
  • 1 ¼ dl kókosmjöl
  • 2 ¼ dl döðlur, smátt saxaðar
  • ¾ dl ljósar rúsínur, smátt saxaðar
  • 1 tsk kanill
  • ¼ tsk allrahanda
  • ¼ tsk vanilluduft
  • 3-4 epli, rifin á grófu rifjárni (t.d. 2 rauð og 2 græn)

Aðferð:

  1. Setjið möndlur, kókosmjöl, döðlur, rúsínur, kanil og allra handa í matvinnsluvél og blandið vel saman og setjið í skál.
  2. Kreistið safann (það þarf virkilega að kreista vel svo fyllingin verði ekki of blaut) vel úr rifnu eplunum og bætið þeim útí skálina og klípið þetta vel saman.
  3. Skiptið fyllingunni í fernt og setjið ofan á hvern botn.
  4. Skreytið með mórberjum og eplasneiðum.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangs- og sinnepsgljáð sellerírót með linsum, fetaosti og mandarínu

Ofnbakað grasker með burrata og heslihnetusmjöri

Skyrbrauð með birki og hörfræjum