Chili sin carne með súkkulaði

„Chili sin carne með súkkulaði, guacamole og sýrðum kasjúrjóma,“ úr smiðju Sollu sem löngum var kennd við Gló. Chili sin carne er frábrugðið chili con carne að því leiti að í því er ekkert kjöt. Annað hvort er notuð dós af nýrnabaunum eða 250 grömm af nýrnabaunum sem eru lagðar í bleyti yfir nótt. Síðan er skipt um vatn og þær soðnar í hálfa aðra klukkustund. Þetta geymist í 3-4 daga í loftþéttu íláti í kæli.

Cili sin carne:

  • 1 dós nýrnabaunir
  • 2 msk olía til steikingar
  • 1 rauðlaukur, smátt saxaður
  • 4 hvítlauksrif, pressuð
  • 2 stk rauður chili pipar, smátt saxaðir
  • 500g blandað grænmeti: sætar kartöflur, gulrætur, rauð paprika
  • 4 msk tómatpúrra
  • 1 dós maukaðir tómatar eða tómatpassata
  • 2 smátt saxaðar döðlur
  • 2 tsk cumminduft
  • ½ tsk reykt paprika eða chipotle pipar
  • 1 lárviðarlauf
  • 1 kanilstöng
  • Sjávarsalt
  • 25 g lífrænt 70% dökkt súkkulaði, skorið í litla bita
  • 2 msk ferskur kóríander til að strá yfir

Aðferð:

  1. Hitið olíu í potti og mýkið rauðlauk, hvítlauk og chili pipar í 5 mínúr. Hrærið tómatpúrru útí ásamt maukuðum tómötum, smátt söxuðum döðlum og kryddinu. Látið sjóða í við vægan hita í 25 mín.
  2. Skerið grænmetið í passlega munnbita og bakið í ofni við 180 – 200 gráður í 20 mínútur. Bætið grænmetinu útí pottinn og leyfið að malla í 10 mínútur. Bætið við súkkulaði og hrærið þar til það hefur bráðnað.
  3. Stráið yfir ferskum kóríander og berið fram með sýrðum kasjúrjóma og guacamole.

Sýrður kasjúrjómi:

  • 1 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2 klukkustundir
  • 2 msk kókosmjöl
  • 3 msk límónusafi
  • 2 msk ólífuolía
  • 1-2 msk agavesýróp
  • 1 tsk sjávarsalt

Aðferð:

  1. Hellið vatninu af kasjúhnetunum og setjið allt í blandara eða matvinnsluvél og blandið þar til það verður  silkimjúkt.
  2. Ef þetta er of þykkt má þynna með smá vatni. Passið að setja ekki of mikið vatn því þá verður blandan of þunn.

Cuacamole:

  • 2 avókadó, afhýdd og steinninn fjarlægður
  • 2 tómatar, skornir í litla teninga
  • ½ rauðlaukur, smátt saxaður
  • 1 msk fínt saxaður ferskur chili pipar
  • 1 msk límónusafi
  • 1 hvítlauksrif, pressað
  • ¼ tsk salt
  • 25 g ferskur kóríander, smátt saxaður

Aðferð:

  1. Stappið avókadó með gaffli svo það verði að mauki, má hafa svolítið af grófari bitum.
  2. Setjið í skál með restinni af uppskriftinni, blandið saman og setjið inn í ísskáp í 10-15 mínútur.

Myndir: Pálmi Jónasson og Solla


Related posts

Hunangs- og sinnepsgljáð sellerírót með linsum, fetaosti og mandarínu

Ofnbakað grasker með burrata og heslihnetusmjöri

Skyrbrauð með birki og hörfræjum