Glútenlausar bananamúffur

Bananamúffur úr smiðju Rögnu Ingólfsdóttur. Þessar hollu múffur eru frábærar sem nesti í ferðalagið, hjólreiðatúrinn eða fjallgönguna.

Bananamúffur:

  • 200 g hrísmjöl
  • 60 g kartöflumjöl
  • 30 g maísmjöl
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk kanill
  • 1 tsk flögusalt
  • 4 stórir vel þroskaðir bananar, stappaðir
  • 2 egg
  • 1 msk kókosolía (fljótandi)
  • 100 ml hrísmjólk

Aðferð:

  1. Öllu blandað saman og hrært vel. Einnig er hægt að bæta út í deigið sólblómafræjum, kókosmjöli, eða því sem þér finnst gott.
  2. Síðan er þessu skellt í form og á 190-200 gráður í ofn í 20-25 mínútur.

Mynd: Pixabay

Related posts

Skyrbrauð með birki og hörfræjum

Skvísur uppfylla ekki næringarviðmið

Sellerírót – Úr aukahlutverki í aðalrétt