Eggjakaka með manchego og harissa

Dásamlega einföld en sérdeilis bragðgóð eggjakaka úr smiðju Yotam Ottolenghi. Harrisan og karmeliseraði laukurinn eru í lykilhlutverki í eggjakökunni. Manchego osturinn smellpassar en ég hef líka notað emmentaler ost og cheddar. Það má líka skipta fersku kóríander út fyrir basilíku eða steinselju. Límóna á kantinum gefur fallegan lit.

Þú þarft:

  • 3 msk ólífuolía
  • 3 laukar
  • 12 egg
  • 100 ml rjómi
  • 5,5 msk harissa
  • 2 tsk nigella fræ
  • 15 gr ferskt kóríander
  • 110 gr manchego ostur
  • 2 límónur
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Brúnið laukinn á pönnu við meðalhita í 15-20 mínútur. Hrærir reglulega en laukurinn á að verða fallega gullinbrúnn og vel karmeliseraður. Setjið laukinn í skál með hrærðum eggjum, rjóma, harissu, nigella fræjum, fersku kryddi, salti og pipar. Hef stundum sett helminginn af rifnum osti með. Þetta er hægt að gera að morgni og geyma í ísskáp.
  2. Penslið pönnu sem má fara í ofn með olíu. Hellið eggjablöndunni út í og setjið rifinn ost yfir. Bakið við 200-220 gráður í um 15 mínútur eða þar til eggjakakan er fallega gullinbrún. Skreytið með ferskum kryddjurtum og límónu.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Spírur – Meira en bara skraut á disknum

Bragðmikil tómatsúpa

Hörpuskel með byggottó og smjörsósu