Byggsalat frá Heilsustofnun

Byggsalat úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Uppskriftin passar fyrir tvo.

Byggsalat:

  • 2 litlar rauðrófur, bakaðar
  • 300 g soðið bygg
  • 1 tsk túrmerik
  • 1 stór lárpera
  • ½ granatepli
  • Handfylli kóríander eða steinselja
  • 3 handfylli af söxuðu grænkáli
  • Rifin börkur og safi úr ½ appelsínu og sítrónu
  • ½ dl ólífuolía eða repjuolía
  • Þumall af piparrót
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Rauðrófurnar eru bakaðar heilar í ofni á 160°C í um 40 mínútur. Kældar, afhýddar og skornar í teninga.
  2. Byggið er soðið í vatni með smá grænmetiskrafti og túrmerik. Lárperan er skorin í teninga. 
  3. Öllu er blandað saman og sett í skál. Að lokum er piparrót rifin yfir og skreytt með granatkjörnunum.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli