Blómkálsklattar með hnetusósu

Blómkálsbollur með hnetusósu úr smiðu Halldórs Steinsson matreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.

Blómkálsklattar:

  • 500gr soðið blómkál
  • 200 g fínt skorinn blaðlaukur
  • 100 g smátt skorið sellerí
  • 100 g soðin hrísgrjón
  • 2 msk saxað kóríander
  • 2 tsk karrý
  • Safi úr ½ sítrónu
  • 1 egg
  • 4 msk spelthveiti eða bókhveiti ef gera á glúteinlausar bollur
  • 3 hvítlauksrif pressuð
  • Salt/pipar

Aðferð:

  1. Byrja á því að saxa blómkálið fínt og blanda svo öllu saman. Ef blandan er of blautt þá er bætt við smá meira spelt.
  2. Bollurnar eru svo mótaðar og steiktar á pönnu í kókosolíu eða annarri olíu eftir smekk.

Hnetusósa:

  • 150 gr hnetusmjör, whole earth crunchy
  • 2,5 msk sojasósa
  • safi úr einu lime
  • 1 msk rifinn engifer
  • 1 msk hunang 
  • 1 hvítlauksrif, rifið
  • 1 rautt chilli, saxað smátt
  • 3 dl kókosmjólk

Aðferð:

  1. Allt sett í pott og hitað varlega að suðu.

Related posts

„Stór hópur fólks sem lendir í kulnun eða örmögnun“

Ætihvönn í allan mat!

Áhrif umhverfis á andlega heilsu