Hunangsleginn silungur

Þessi girnilega silungsuppskrift kemur frá matgæðingnum Gosiu Madej. Silungur er stútfullur og vítamínum og omega-3 fitusýrum. Það er góð næringarregla að borða fisk tvisvar í viku.

Þú þarft:

  • 1 silungur
  • 100 g möndlur
  • 2,5 msk hunang
  • 60 ml ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 1/2 sítróna

Aðferð:

  1. Möndlur malaðar í matvinnsluvél. Ólífuolían, tvær matskeiðar af hunangi og safi af hálfri sítrónu sett í skál og öllu blandað saman. Þessu er smurt á silunginn og möndlur settar yfir ásamt salti og pipar.
  2. Eldað í ofni í 15-20 mínútur við 175 gráður.

Sósan:

  • 150 gr grísk jógúrt
  • 2 msk hunang
  • 5 msk hunangssinnep
  • Salt og dill

Aðferð:

  1. Öllu blandað í skál og kælt vel. Saltið og dillið er valkvætt.

Related posts

Áhrif umhverfis á andlega heilsu

Sykur og hvítt hveiti á bannlista Lionels Messi

Opna Heilsumótið í Hveragerði 19. júlí