Þessi grautur er skemmtilega fjölbreyttur og einstaklega prótein- og trefjaríkur. Best er að nota skorna hafra eða „steel cut“ og nota má hvaða mjólk sem er. Grauturinn er borinn fram heitur með blönduðum ávöxtum, möndlum, kanil, eplum, sykurlausri sultu eða hverju því sem hugurinn girnist.
Þú þarft:
- 1 msk ólífuolía
- 100 g brún hrísgrjón
- 100 g kínóa
- 70 g hafrar
- 50 g hirsi
- 1/2 tsk salt
- 1 lítri vatn
- 2 dl möndlumjólk
Aðferð:
- Hitið olíu í stórum potti og bætið við hrísgrjónum, kínóa, höfrum, hirsi og salti. Hrærið vel og ristið í um tvær mínútur.
- Bætið við vatni og látið malla í 35-40 mínútur. Hrærið öðru hvoru í grautnum.
- Þegar þetta er farið að líkjast hafragraut er potturinn tekinn af hitanum og mjólkinni hrært saman við.
- Grauturinn er borinn fram heitur með blönduðum ávöxtum, möndlum, kanil, eplum, sykurlausri sultu eða hverju því sem hugurinn girnist.
Mynd: Halldór Steinsson