Kínóaborgari

Kínóaborgarinn er einn vinsælasti rétturinn á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Kínóa er einstaklega næringarríkt og eitt af fáum plöntutegundum sem inniheldur allar níu nauðsynlegu amínósýrurnar, sem eru byggingareiningar próteina. Auk þess er kínóa mjög ríkt af trefjum, B-vítamínum, járni, magnesíum og sinki. Kínóa er glútenlaust og hentar því vel sem valkostur í kornvörum fyrir þá sem eru með glútenóþol.

Þú þarft:

  • 400 g rautt kínóa
  • 1 saxaður laukur
  • 2 tsk fennelduft
  • 1 tsk chiliduft
  • 1 dós svartar baunir
  • 150 g gulrót í litlum teningum
  • 70 g brauðrasp
  • 100 g ristaðar og muldar valhnetur
  • Safi úr 1 sítrónu
  • 1 msk söxuð steinselja
  • 1 msk sriacha sósa eða tómatpúrra
  • 2 msk kartöflumjöl
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Sjóðið kínóa samkvæmt leiðbeiningum, sigtið og kælið.
  2. Steikið laukinn fallega brúnan á pönnu og kryddið svo með fennel og chilidufti. Bætið baunum við, steikið í 5-10 mínútur og hrærið vel á meðan. Stappið svo allt saman með kartöflupressu og blandið við kínóa.
  3. Gulræturnar eru steiktar á pönnu í olíu með salti og pipar. Hrærið saman við deigið. Bætið við brauðraspi, valhnetum, sítrónusafa, steinselju og chilisósu og smakkið til með salti og pipar. Kartöflumjölinu blandað út í 2 matskeiðar af vatni og hnoðað saman við deigið.
  4. Mótið 12-15 borgara og bakið í ofni við 220 gráður eða steikið á pönnu í 3-4 mínútur á hvorri hlið.

Mynd: Halldór Steinsson

Halldór Steinsson, matreiðslumeistari á Heilsustofnun NLFÍ

Related posts

Pasta með ólífum, kapers og harissa

Blómkálsbaka

Indverskur lax moilee