Ofureinföld linsusúpa

Einföld linsusúpa sem við eldum oft í ferðalögum. Þú þarft bara einn pott og hráefnið er þurrvara plús laukur og sítróna sem þarf ekki að vera í kæli. Fullkomið til að taka með í langferðalagið og elda á prímusnum. Bónusinn er svo hvað hún er mettandi og næringarþétt.

Þú þarft:

  • 1 msk ólífuolía
  • 1 tsk cumin fræ
  • 1 lárviðarlauf
  • 1 laukur
  • 1 msk jurtakraftur/grænmetiskraftur (gerlausan)
  • 2 dl rauðar lífrænar linsur
  • 500 ml vatn
  • 1 flaska af lífrænni tómat passata
  • 1 dós lífræn kókosmjólk
  • 2 tsk karrý
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • ca 1/2 tsk jurtasalt

Aðferð:

  1. Byrjið á að hita ólífuolíuna og setja svo cuminfræin útí og leyfið að hitna í smá stund.
  2. Bætið smátt skornum lauknum útí ásamt lárviðarlaufinu og jurtakrafti. Steikið þar til laukurinn er orðinn mjúkur, bætið pínu vatni útí pottinn ef laukurinn fer að brenna við.
  3. Nú má bæta linsum, vatni, tómat passata, kókosmjólkinni og karrý útí og leyfið að malla þar til linsurnar eru orðnar mjúkar.
  4. Bætið við sítrónusafa fyrir ferskleik sem er algjört lykilatriði að mínu mati. Smakkið til og saltið eftir smekk.

Related posts

Einfalt malasískt karrý

Silungur, smjörbaunir og límóna

Stökkt tófú með sesam, chili og lime