Endurnærandi orkudrykkur

Þessi orkudrykkur er hlaðinn efnum sem nýtast vel í öllum íþróttum. Þessi drykkur er m.a mjög ríkur af próteini, B- og C-vítamínum, trefjum, kalíum, kalki og gingeróli. Skyr og jógúrt eru mjög próteinrík og gott í endurheimt á slöppum vöðvum og sinum eftir áreynslu. Auk þess eru mjólkurvörur mjög ríkar af kalki og B2-vítamíni. Steinefnið kalíum í banönum er þekkt fyrir að vinna gegn sinadrætti og vöðvakrömpum. Kíví er mjög C-vítamínríkt. Líkaminn þarf aukið C-vítamín þegar hann er undir miklu álagi og er C-vítamín öflug andoxunarefni. Virkasta efnið í engiferrótinni er gingeról en það hefur sýnt sig hafa bólguhemjandi áhrif í líkamanum. Best er að fá sér þennan drykk strax að lokinni góðri æfingu til að endurnæra sig vel.

Orkudrykkur:

  • 1 ½ kíví
  • 2 epli
  • ½ banani
  • 2-3 cm af engiferrót
  • 200 g hreint skyr eða jógúrt
  • 200 ml vatn
  • 3-4 ísmolar

Aðferð:

  1. Afhýðið ávextina, skerið í bita og blandið í blandara ásamt ísmolunum og vatninu í 30-40 sekúndur.
  2. Engiferrótin er sett í safapressu og safinn svo blandaður við drykkinn og blandað í um 10-15 sekúndur.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli