Möndlumjólk

Möndlumjólk er frábær valkostur fyrir þá sem eru vegan, eru með mjólkurofnæmi eða laktósaóþol. Hún er líka meinholl. Uppskriftin birtist í bókinni „Uppskriftir Heilsustofnunar“.

Þú þarft:

  • 350 g möndlur
  • 1 lítri vatn
  • 2 klípur sjávarsalt
  • 4 döðlur eða 2 tsk gott hunang

Aðferð:

  1. Leggið möndlurnar í bleyti í skál svo fljóti vel yfir, helst yfir nótt. Skolið vel með köldu vatni og setjið í blandarar með afganginum af innihaldsefnunum, auk líktra af köldu vatni og blandið vel. Sigtið í gegnum spírupoka eða fínt sigti.
  2. Setjið mjólkina á flöskur. Getur geymst í kæli í allt að þrjá daga.

Related posts

Áhrif umhverfis á andlega heilsu

Sykur og hvítt hveiti á bannlista Lionels Messi

Opna Heilsumótið í Hveragerði 19. júlí