Næringarík og bragðgóð uppskrift frá Gosiu Madej. Þetta er einfaldur og þægilegur matur sem tekur stutta stund að galdra fram. Einfalt að baka kúrbítinn og sætu kartöfluna á sama tíma í ofninum.
Þú þarft:
- 2 kúrbítar
- 7 msk ólífuolía
- 1/2 msk timian
- Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið kúrbítinn í tvennt á lengdina og skafið fræin úr miðjunni með skeið. Blandið því sem skafið er úr kúrbítnum með olíu, timian, salti og pipar.
- Setjið kúrbítinn á ofnplötu og smyrjið olíunni yfir. Bakið í 20 mínútur við 180 gráður.
Sætar kartöflur:
- 1 stór sæt kartafla
- Ólífuolía
- Salt og pipar
Aðferð:
- Skerið sætu kartöfluna í bita og veltið upp úr smávegis af ólífuolíu, salti og pipar. Bakað í ofni við 180 gráður í 25 mínútur.
- Maukið sætu kartöfluna með töfrasprota og setjið inn í kúrbítsbátana.
- Bakað saman í 10 mínútur við 180 gráður.
Lárperu salsa:
- 120 g maís
- 2 lárperur (avókadó)
- 1 rauð papríka í teningum
- 1/2 saxaður rauðlaukur
- Salt og pipar
- Safi úr 1/2 sítrónu
- Vorlaukur og steinselja
Aðferð:
- Öllu blandað saman í skál og sett ofan á eldaðan kúrbítinn.
- Gott að setja parmesan yfir eða þessa grænu sósu.
Græn sósa:
- 100 ml ólífuolía
- 30 g basilika
- 30 g spínat
- 15 g steinselja
- Salt
Aðferð:
- Öllu blandað saman í blandara.