Matreiðslumeistarinn Gosia Madej gaf okkur uppskriftina af þessum dýrindis kjúklingi í kaperssósu. Gott að bera fram með hýðishrísgrjónum og fersku salati.
Þú þarft:
- 400 g úrbeinaður kjúklingur
- 30 g hökkuð steinselja
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk pipar
- 1 msk sítrónusafi
Aðferð:
- Setjið steinselju, sítrónusafa og kryddin á kjúklinginn og látið standa í ísskáp í um klukkustund.
- Bakið við 175 gráður í 30 mínútur
- Skerið kjúklinginn niður. Hellið kaperssósunni yfir og eldið í 10 mínútur við 175 gráður.
Sósan:
- 1 laukur
- 3 msk ólífuolía
- 200 ml kókosmjólk
- 10 msk kapers
- 150 g steinselja
- 1 dl hvítvín
- Börkur af 1 sítrónu
- 1 msk grænmetiskraftur
- Maíssterkja
- Salt og pipar
Aðferð:
- Steikið laukinn í olíu þar til hann verður gullbrúnn. Bætið við kókosmjólk, lauk, kapers, sítrónusafa og grænmetiskraft. Bíðið þangað til suða kemur upp og bætið þá við steinselju.
- Blandið í aðra skál 2 msk af vatni með maísstekju og hellið yfir sósuna. Þegar sósan þykknar, bætið þá salti og pipar eftir smekk og kapers ef þú vilt enn meira bragð.