Berjabaka

Gómsæt berjabaka birt með góðfúsu leyfi Sollu sem jafnan er kennd við Gló. Gott að bera fram með þeyttum kókosrjóma.

Berjabaka:

  • 100 g spelt
  • 140 g haframjöl
  • 80 g malaðar möndlur eða heslihnetur
  • 90 g pálmasykur eða hunang
  • 1 tsk kanill
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 120 ml kókosolía

Fylling:

  • 100 g bláberjasulta
  • 120 g bláber

Aðferð:

  1. Setjið þurrefnin í skál og blandið.
  2. Bætið kókosolíunni út í og hnoðið þar til deigið klístrast saman.
  3. Notið 1/4 af deiginu í hjörtun. Setjið deigið milli tveggja bökunarpappírsblaða og rúllið deigið út með kökukefli. Notið piparkökumót til að skera út hjörtu eða falleg mynstur. Geymið hjörtun í kæli.
  4. Þrýstið restinni af deiginu í botninn á 23 cm kökuformi. Smyrjið sultu á botninn og hellið bláberjum yfir sultuna. Leggið hjörtun yfir kökuna.
  5. Bakið við 190 gráður í 20 – 25 mínútur. Leyfið kökunni að kólna aðeins.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli