Fiskibollur

Frábær uppskrift af fiskibollum úr uppskriftabók Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands. Uppskriftin passar fyrir 6-8 með kartöflum og fersku salati.

Þú þarft:

  • 500 grömm hvítur fiskur
  • 4 msk heilhveiti
  • 1/2 saxaður laukur
  • 2-3 söxuð hvítlauksrif
  • 2 egg
  • 1/2-1 dl léttmjólk
  • 10-15 g malaðar súpujurtir
  • 1 1/2 tsk salt
  • Pipar

Aðferð:

  1. Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman.
  2. Mótið bollur og brúnið á pönnu. Bakið í ofni við 180 gráður í 10 mínútur.

Related posts

Blómkálsklattar með hnetusósu

„Stór hópur fólks sem lendir í kulnun eða örmögnun“

Ætihvönn í allan mat!