Krúska

Krúska hefur löngum verið  sígildur þáttur í fæði þeirra sem aðhyllast náttúrulækningastefnunni. Krúska er mjög næringarrík, mettir vel, er trefjarík og því mjög góð fyrir meltinguna. Krúska er frábær morgunverður ein og sér eða með mjólk, AB-mjólk, súrmjólk eða jógúrt. Orðið krúska er dregið af latneska heitinu á hýði.  Krúsku er fyrst getið í ritinu ”Matur og meginn (útg. 1943 af NLFÍ)” eftir Are Waerland, virtan sænskan manneldis- og næringarfræðing.

Þú þarft:

  • 2 dl hafraflögur
  • 1/2 dl byggflögur
  • 1/2 dl rúgflögur
  • 1/2 dl hörfræ
  • 2 dl rúsínur
  • 2 msk hveitiklíð
  • Vatn

Aðferð:

  1. Blandið öllum kornflögunum saman ásamt hörfræi og rúsínum í potti. Hellið vatni yfir og látið fljóta vel yfir þannig að vatnsmagnið sé um helmingi meira en þurrefnin.
  2. Látið suðuna koma upp og gætið þess að krúskan verði ekki of þurr því kornið  og flögurnar drekka í sig mikið vatn. Bætið því  vatni út ef ykkur  sýnist svo. Sjóðið krúskuna við hægan hita í 15-20 mínútur.

Hátíðarútgáfa:

  • 2 msk hunang
  • 4 msk kókosmjöl/kókosflögur
  • 100-150 g döðlur

Aðferð:

  1. Blandið hunanginu út í krúskuna og jafnið vel. Hellið næst krúskunni í í skál, setið lokið yfir og kælið. Stráið síðan kókosmjölinu og söxuðum döðlum yfir krúskuna.
  2. Krúskan geymist í þjrá daga í kæliskáp

Ýtarefni um krúsku:
Are Waerland – Matur og Megin. Rit Náttúrulækningafélags Íslands.2.útgáfa 1944. Bls.36-43.
Heilsuvernd.  Sérútgáfa 1. Ljúffengt heilsufæði. 45 árgangur 1989. Bls.20.
Matreiðslubók NLFÍ. 3.útgáfa 1989. Bls.138.

Related posts

Parmesanfiskur & Döðlusalat

Bakað blómkál með valhnetu gremolata

Plokkfiskur með sinnepi og osti

2 Ummæli

Erna Grétarsdóttir 6. maí, 2022 - 11:14

Góðan dag, mig langar að fá upplýsingar frá ykkur ef það er mögulegt, málið er að hér áður fyrr eldaði ég oft Krúska en í dag f´ég ekki eitt hráefni en það er rúgflögur, getið þið nokkuð sagt mér hvort ég get notað eitthvað í staðinn, t.d. rúgmjöl eða eitthvað annað, allt annað hráefni á eg, Bestu kveðjur Erna Grétasdóttir.

Geir Gunnar Markússon 27. maí, 2022 - 13:07

Sæl, þú getur notað byggflögur. Mæli með byggi frá Vallanesi https://modirjord.is/product/byggflogur-800g/
Með kveðju,
Geir Gunnar ritstjóri NLFÍ

Comments are closed.

Add Comment