Lax, kjúklingabaunir, harissa og feta

Ofnbakaður lax með hunangi og limeberki ásamt kjúklingabaunasalati með hvítlauk, sítrónuberki og fetaosti. Granateplasíróp í lokin setur punktinn yfir I-ið. Þetta verður enn ferskara með konfekt tómötum í lokin. Þessi uppskrift smellpassaði fyrir þrjá.

Fiskurinn:

  • 600 g laxaflak
  • Hunang
  • 1 limebörkur

Aðferð:

  1. Roðdragið laxaflakið og þerrið fiskinn vel.
  2. Setjið 1-2 tsk af hunangi ofan á fiskinn og dreifið jafn yfir með höndunum. Rífið börk af lime jafn yfir fiskinn.
  3. Bakið í 200 gráðum í 10-15 mínútur.

Baunasalat:

  • 1 dós kjúklingabaunir
  • Ólífur
  • 1 msk harissa
  • 3 msk ólífuolía
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 sítrónubörkur
  • Ferskt basil
  • 1 stk fetaostur
  • 1 msk granateplasíróp

Aðferð:

  1. Blandið kjúklingabaunum, skornum ólífum, harissa, olíu, söxuðum hvítlauk og rifnum sítrónuberki í eldfast fat.
  2. Bakið við 200 gráður í 25 mínútur. Hrærið öðru hvoru.
  3. Takið út og skreytið með fetaosti, basil og smávegis af granateplasírópi ef þið eigið það til. Nýtið einnig sítrónu og/eða lime sem notaðar voru barkarrifin í uppskriftinni.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Egg & Kotasæla fyrir einn

Af hverju er ekkert kjöt?

„Endurhæfing verði sjálfsagður hluti heilbrigðisþjónustunnar“