Egg & Kotasæla fyrir einn

Ótrúlega einfaldur og fljótlegur morgunverður fyrir einn. Þú þeytir eggið og bætir við kotasælu þannig að það passi sæmilega i það form sem þú átt. Smápottur eins og sést á myndinni hér að neðan eða múffuform henta fullkomlega. Í þessa eggjaköku bætti ég vænni matskeið af sinnepi og einni sneið af rifinni parmaskinku sem var til í skápnum. Allt grænmeti og afgangar henta vel en þetta er samt fyrst og fremst egg og kotasæla. Gott að setja smávegis af rifnum osti á toppinn.

Þú þarft:

  • 1 egg
  • Kotasæla

Aðferð:

  1. Smyrðu formið vel með smjöri eða olíu og láttu örlítið af hveiti festast í feitinni.
  2. Þeyttu eitt egg og blandaðu kotasælu við þannig að það passi í formið sem þú notar.
  3. Bættu við bragðefnum eins og ferskur kryddi eða sinnepi og eitthvað smotterí af grænmeti eða öðru handhægu úr ísskápnum. Rífðu smávegis af osti yfir.
  4. Bakað í ofni við 190 gráður þar til fallega brúnt.

Myndir: Pálmi Jónasson

Related posts

Af hverju er ekkert kjöt?

„Endurhæfing verði sjálfsagður hluti heilbrigðisþjónustunnar“

„Endurhæfing einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustu“