Vanilluís

Vanilluís með kókosolíu og kasjúhnetum. Birt með leyfi frá Sollu í Gló.

Þú þarft:

  • 3 dl kasjúhnetur
  • 2,5 dl möndlumjólk
  • 3/4 dl agave síróp eða önnur sæta
  • 1-2 tsk vanilla, duft eða dropar
  • 1/2 dl fljótandi kókosolía
  • 1/4 tsk sjávarsalt

Aðferð:

  1. Leggið kasjúhneturnar í bleyti í 2 klukkustundir.
  2. Setjið kasjúhnetur, möndlumjólk, síróp og vanillu í blandara og gerið silkimjúkt. Bætið kókosolíunni og saltinu við blandið stutta stund.
  3. Setjið annað hvort í ísvél eða silkiform og frystið. Hrærið öðru hvoru á meðan blandan frosnar.

Related posts

Áhrif umhverfis á andlega heilsu

Sykur og hvítt hveiti á bannlista Lionels Messi

Opna Heilsumótið í Hveragerði 19. júlí