Spelt brauð

Hollt og gott sykurlaust brauð. Uppskriftin passar í 5 lítil álbrauðform.

Þú þarft:

  • 800 g spelt
  • 100 g sesamfræ
  • 100 g graskersfræ og/eða sólblómafræ
  • 80-100 g kókosmjöl
  • 1 tsk vínsteins lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 500-600 ml AB mjólk
  • 400-500 ml vatn

Aðferð:

  1. Allt hrært saman með sleif
  2. Bakað í ofni við 170 gráður í um klukkustund.

Related posts

Áhrif umhverfis á andlega heilsu

Sykur og hvítt hveiti á bannlista Lionels Messi

Opna Heilsumótið í Hveragerði 19. júlí