Svartbaunaquesadilla og lárperusalsa

Svartbaunaquesadilla með lárperusalsa úr smiðju Halldórs Steinsson matreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.

Quesadilla:

  • 1 dós svartar baunir
  • 1 krukka sólþurrkaðir tómatar
  • 1 dós maukaðir tómatar
  • 1 laukur smátt saxaður
  • 1 græn paprika smátt skorin
  • 4 hvítlauksrif smátt söxuð
  • ½  tsk karrý
  • ½ tsk cumin
  • handfylli saxaður kóríander
  • ½  tsk salt
  • 1 tsk pipar
  • rifinn ostur
  • heilhveiti tortillur

Aðferð:

  1. Steikjið lauk, papriku, hvítlauk, karrý og cumin í potti. Maukið sólþurrkuðu tómatana í matvinnsluvél og bætið út í pottinn ásamt tómatmauki og svörtum baunum. Saltið og piprið. Látið þetta malla við vægan hita í um 10 mínútur og bætið ferskum kóríander við í lokin. Takið af hitanum og kælið.
  2. Þegar blandan er orðin köld er hún smurð á tortillurnar, rifnum osti dreift yfir og lokað með annarri tortillu.
  3. Olía hituð á pönnu og kakan steikt þar til hún er fallega brún á báðum hliðum. Skerið hana til helminga og berið fram með lárperusalsa og sýrðum rjóma.

Lárperusalsa:

  • 2 lárperur
  • 1 rauðlaukur
  • 3 hvítlauksrif
  • safi úr ½ sítrónu
  • 1 lúka ferskur kóríander
  • smá salt

Aðferð:

  1. Allt skorið smátt og blandað saman.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli