Streita, áföll og taugakerfið

Skráning er hafin á námskeiðið Streita, áföll og taugakerfið sem verður haldið 26.-30. ágúst. Þetta er í sjötta sinn sem námskeiðið er haldið og það hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur. Best er að skrá sig með því að senda tölvupóst á heilsa@heilsustofnun.is.

Markmið námskeiðsins er að finna og efla eigin styrk til að takast á við og vinna úr einkennum áfalla og langvinnrar streitu. Unnið er með taugakerfið með fræðslu, hugleiðslu, jóga nidra, djúpslökun, áfallajóga, náttúrugöngu í núvitund, slökun í vatni og samtali. Á námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri til að læra að takast á við einkenni áfalla og streitu, finna leiðir og fá ýmis verkfæri til að auka vellíðan í daglegu lífi.

Umsjón hafa Margrét Grímsdóttir, hjúkrunarfræðingur og félagsráðgjafi og Sigrún Sigurðardóttir, doktor í hjúkrunarfræði

Related posts

Taktu þátt og segðu okkur hvað hentar þér!

2.5 „Sopið ótæpilega af lækjarvatni og brennivíni“

Svartsfuglsegg með Peccorino Toscano