Pönnusteikt smálúðuflök eru mikið sælgæti og hér er lime og parmesan í aðalhlutverki. Uppskriftin er fyrir þrjá og með þessu voru kartöflur og heimagert remúlaði. Það má líka sleppa hveitinu og steikja roðið vel stökkt á roðhliðinni áður en flakinu er snúið við í örstutta stund. Ég notaði kapers og graslauk í remúlaðið en ef menn vilja sýrðar gúrkur er hæfilegt að hafa tvær matskeiðar af hverju. Best er að byrja á remúlaðinu og láta það taka sig í ísskápnum. Það má hræra hverju sem er saman við kartöflurnar. Notið það sem ykkur líkar best.
Fiskurinn:
- 3 smálúðuflök
- Salt og pipar
- Hveiti
- Limebörkur
- Parmesan
- Smjör
Aðferð:
- Þerrið flökin vel og kryddið vel með salti, pipar á roðhliðinni en setjið parmesan og sítrónubörk á kjöthliðina.
- Veltið upp úr hveiti. Steikið í smjöri á pönnu og byrjið á roðhliðinni. Steikið roðið stökkt en aðeins stutta stund á hinni hliðinni.
Remúlaði:
- 1 dós sýrður rjómi (180 g)
- 3 msk kapers
- 3 msk graslaukur
- 3 ansjósuflök
- 1 msk túrmerik
- 1 tsk hunang
- Salt og pipar
Aðferð:
- Saxið kapers, graslauk og ansjósur. Öllu blandað saman í skál.
Kartöflur:
- 500 g kartöflur
- 1 msk sýrður rjómi eða smjör
- 2 msk sinnep
- 1 tsk hunang
- graslaukur
Aðferð:
- Sjóðið kartöflurnar og látið þær svo kólna aðeins í sigti.
- Hristið allt saman í skál og skreytið með graslauk eða öðru því sem þið kjósið að nota.
Myndir: Pálmi Jónasson