Uppskrift að tveggja daga heilsuátaki Sollu á Gló

„Það getur verið erfitt að skipta um gír og kveðja löngun í sætindi og sukk,“ segir Solla á Gló. „Þá virkar oft vel að taka fyrstu dagana með trukki. Mér finnst gott að taka tvo daga á léttu mataræði þar sem ég fæ mér grænmetisdjúsa, sjeika, salöt og súpur. Þá ná bragðlaukarnir yfirleitt að núllstilla sig og eru tilbúnir í hollu hversdagsrútínuna aftur. Hér er hugmynd að tveggja daga léttum matseðli. Munið bara að drekka nóg af vatni og góðu jurtatei yfir daginn.“

Dagur 1:

Grænn djús:

  • 2 sellerístilkar
  • 1/2 gúrka
  • 1/2 afhýdd límóna
  • 2-3 cm biti ferskt engifer
  • 1-2 dl. vatn

Aðferð:

  1. Allt skorið í bita og sett í blandara. Hellt í gegnum síupoka eða nælonsokk.

Morgunsjeik:

  • 2 dl möndlumjólk
  • 1 banani
  • 2 dl frosin bláber
  • 1 msk grænt duft (t.d. þurrkað hveitigras, chlorella eða hampprótein) 2 stórar, vel þroskaðar lárperur
  • 2 msk ferskur límónusafi
  • ½ tsk salt, eða eftir smekk
  • 3 msk rauðlaukur, fínt saxaður
  • 2 msk ferskt kóríander, fínt saxað
  • 1 þroskaður tómatur, fræhreinsaður og smátt saxaður, (valfrjálst)
  • ½–1 jalapeño, fræhreinsaður og smátt saxaður, (valfrjálst)

Aðferð:

  1. Möndlumjólk er hægt að gera með því að blanda saman hálfum desilítra af möndlum og tveimur desilítrum af vatn og sigta. Grænt duft getur verið þurrkað hveitigras, chlorella eða hampprótein.
  2. Allt sett í blandara og blandað saman.

Hádegissalat:

  • 2 sellerístilkar
  • 1/2 gúrka
  • 1/2 afhýdd límóna
  • 2-3 cm biti ferskt engifer
  • 1-2 dl. vatn

Marínering:

  • 1/2 dl jómfrúarólífuolía
  • 2-3 msk sítrónusafi
  • 1 msk sinnep
  • 1 msk. tamarisósa

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman sem fer í marineringuna.
  2. Skolið og rífið eða skerið kálið og setjið í skál. Skerið kirsuberjatómatana í tvennt og bætið við. Sneiðið vorlaukinn í þunna skástrimla og bætið út í. Skerið avókadó í bita og setjið saman við.
  3. Skerið spergilkál og gulrætur í passlega stóra bita og setjið í sér skál. Hellið maríneringunni yfir spergilkál og gulrætur og látið standa í 10-15 mínútur. Hellið spergilkálsblöndunni út í salatskálina og blandið öllu saman.

Millimálasnakk:

  • Epli
  • Gúrka
  • Gulrót
  • Mandarína

Aðferð:

  1. Veldu eitt af ofantöldu og skerðu í hæfilega bita.

Kvöldverður:

  • 250 g rauðar linsubaunir
  • 1,2 lítrar vatn
  • 1 rauðlaukur, smátt saxaður
  • 1 msk kókosolía eða önnur olía
  • 100 g hvítkál
  • 25 g ferskur kóríander, smátt saxaður
  • 1 tsk cumin duft
  • 1/2 tsk kanill
  • 3 msk. ólífuolía eða kaldpressuð kókosolía
  • 1 1/2 tsk kóríanderfræ
  • 2 hvítlauksrif

Aðferð:

  1. Skolið linsubaunirnar, setjið þær í pott með vatni og látið sjóða í 25-35 mínútur.
  2. Mýkið laukinn á pönnu í olíunni í 3-4 mínútur. Skerið hvítkálið í þunna strimla og setjið út á pönnuna með lauknum og látið mýkjast í 1-2 mínútur. Setjið hann síðan út í pottinn ásamt ferskum kóríander, cumin og kanil og látið malla í 5 mínútur. 
  3. Hitið 3 msk olíu á pönnu. Merjið saman kóríanderfræ og hvítlauk og steikið í 1-2 mínútur í olíunni. Hellið út á súpuna, hrærið í og berið fram.

Dagur 2:

Grænn djús:

  • 2 sellerístilkar
  • 1/2 gúrka
  • 1/2 afhýdd límóna
  • 2-3 cm biti ferskt engifer
  • 1-2 dl. vatn

Aðferð:

  1. Allt skorið í bita og sett í blandara. Hellt í gegnum síupoka eða nælonsokk.

Morgunsjeik:

  • 2 dl kókosvatn
  • 1 hnefi spínat
  • 2 msk goji-ber
  • 1 msk grænt duft
  • 1/2 avókadó, skorið í bita

Aðferð:

  1. Grænt duft getur verið þurrkað hveitigras, chlorella eða hampprótein.
  2. Allt sett í blandara og blandað saman.

Hádegissalat:

  • 2 dl soðnar kjúklingabaunir
  • Örlítið af tamari-sósu
  • 1/2 brokkólíhöfuð, skorið í lítil blóm
  • 50 g ferskt spínat eða stór hnefi grænt salat
  • 1/2 gúrka, skorin í bita
  • 50 g möndlur eða heslihnetur
  • 1 vorlaukur
  • Nokkrir sólþurrkaðir tómatar
  • 10 grænar ólífur
  • Nokkur kapersber, ef vill
  • 2 msk góð kaldpressuð olía
  • 2 msk ferskur sítrónusafi
  • 2 msk ferskur appelsínusafi
  • Hnefi af fersku kryddi, t.d. sítrónumelissu
  • Örlítið sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
  • Tamari-sósa
  • Timían

Aðferð:

  1. Ef þið notið þurrkaðar baunir þá leggið þið þær í bleyti yfir nótt, skiptið síðan um vatn og sjóðið þær gjarnan með smá stórþarastrimli (kombu) í um 1 klukkustund eða þar til hægt er að kremja þær milli fingra sér.
  2. Setjið brokkólí út í sjóðandi vatn í um 1 mínútu eða hendið því aðeins a wokpönnu með smávegis af tamari-sósu.
  3. Setjið spínat og klettasalat í skál. Skerið gúrkuna í tvennt, skafið kjarnann innan úr henni með teskeið. Skerið hana aftur í tvennt eftir endilöngu og síðan í um 5 cm langa bita og setjið út í salatskálina. Skerið vorlaukinn í þunnar sneiðar og setjið saman við salatið, ásamt hnetum, sólþurrkuðum tómötum, ólífum og kapersberjum.
  4. Hrærið saman sítrónusafa, appelsínusafa, sítrónumelissu, timíani og örlitlu salti og pipar og hellið yfir salatið.

Millimálasnakk:

  • Epli
  • Gúrka
  • Gulrót
  • Mandarína

Aðferð:

  1. Veldu eitt af ofantöldu og skerðu í hæfilega bita.

Kvöldverður:

  • 1 rauð paprika, skorin í tvennt, steinhreinsuð og skorin í litla bita
  • 1/2 gúrka, skorin í litla bita
  • 1/2 kúrbítur, skorinn í litla bita
  • 2 vorlaukar
  • 2 msk steinselja
  • 2 msk ferskur kóríander
  • 1 hvítlauksrif
  • 2 cm bútur engiferrót
  • Safi úr 1/2 límónu
  • 1-2 dl vatn (eftir því hvað þið viljið hafa súpuna þykka)
  • 2 msk kaldpressuð ólífuolía
  • 1 tsk ljóst miso eða currypaste
  • Smá salt eða tamarisósa

Aðferð:

  1. Byrjið á að setja papriku, gúrku og smá vatn í blandara. Bætið síðan einni og einni tegund af hráefnislistanum í einu út í svo að auðvelt sé fyrir blandarann að mauka grænmetið.
  2. Blandið þar til allt er orðið silkimjúkt.

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli