Langvinnir verkir skerða lífsgæði fólks verulega

Langvinnir verkir skerða lífsgæði fólks verulega, hamla félagslegum samskiptum og eru algeng orsök örorku og atvinnuskerðingar. Fjöldi þeirra sem eru með langvinna verki er hlutfallslega mikill á Íslandi og norðlægum slóðum. Þetta kemur fram í viðtali í Heimildinni við Sigríði Zoëga sem er sérfræðingur í hjúkrun, dósent við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og deildarstjóri Verkjamiðstöðvar Landspítala.

„Verkir geta verið vegna sjúkdóma eins og krabbameina, vegna æxlis sem þrýstir á eitthvað, þeir geta líka fylgt ýmsum tauga
sjúkdómum eins og MS, sem veldur því að það verður truflun á starfsemi taugakerfisins, líka vefjagigt og endómetríósu. Maður getur fengið verki af áverka eftir slys, það slitnar eitthvað, verður taugaskaði og svo framvegis. Meðferðin fer svo eftir því hvers konar verk er um að ræða. Stundum er orsök verkja ekki þekkt og getur það verið mjög erfitt fyrir einstaklinginn.

Bráðir verkir eru verkir sem geta komið eftir brot eða skurðaðgerð. Þeir eru yfirleitt verstir í byrjun en lagast með tímanum. Síðan eru langvinnir verkir sem eru skilgreindir sem verkir sem hafa varað lengur en í þrjá mánuði en sumar skilgreiningar notast við sex mánuði, en þá er fólk búið að vera með verki stöðugt í þrjá mánuði eða lengur.“

Mynd: Island.is

Related posts

Sjö íbúðir seldar við Lindarbrún í Hveragerði

Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga í dag

Smálúða með parmesan og remúlaði