Kjúklingabaunakarrý

Kjúklingabaunakarrý úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumanns á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.

Pistasíuhjúpuð seljurót:

  • 2 dósir kjúklingabaunir
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 rauð paprika skorin í bita
  • 1 lítið brokkolí og blómkálshaus skorið í bita
  • 4-5 gulrætur skornar í bita
  • 2 tsk karrýduft
  • 1-2 dós kókosmjólk
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1 msk grænmetiskraftur
  • 1 tsk cumin
  • 2 tsk smátt skorið engifer
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 2 msk ferskur kóríander

Aðferð:

  1. Léttsteikið lauk, hvítlauk og engifer í olíu í potti. Bætið við kryddi, kókosmjólk, tómötum og grænmetiskrafti og látið malla á vægum hita í 15 mínútur.
  2. Bætið við kjúklingabaunum, öðru grænmeti og látið malla í stutta stund. Gott að steikja grænmetið aðeins áður en það fer í sósuna.
  3. Ef sósan er of þunn má nota maísmjöl til að þykkja.

Related posts

Áhrif umhverfis á andlega heilsu

Sykur og hvítt hveiti á bannlista Lionels Messi

Opna Heilsumótið í Hveragerði 19. júlí