„Í veikindaleyfinu endaði ég á dvöl á heilsuhælinu í Hveragerði, sem er vægast sagt frábær staður að vera á,“ segir Jón Viðar Matthíasson í viðtali á Vísi.is. Jón Viðar er fyrrverandi slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og nú framkvæmdastjóri almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins.
„Það má segja að tappinn hafi farið úr þegar COVID-19 kom. Þá hófst samfelldur álagstími sem við héldum öll að myndi standa í þrjá mánuði en varð miklu lengri. Heimsfaraldrinum fylgdu mörg ólýsanleg verkefni. Við máttum engan veginn við því að nokkur í hópnum veiktist því það hefði kallað á sóttkví. Þess vegna skiptum við liðinu niður í margar viðbragðseiningar og bækistöðvar. Samstaðan í liðinu var ótrúleg og þá sást vel hversu öflugt það er,“ segir Jón Viðar í viðtalinu á vísir.is.
„Þessi tími reyndi mjög á liðið. Það var eiginlega með ólíkindum hversu reiðubúið fólk var að leggja mikið á sig og láta hlutina ganga upp. Það segir líka mikið um þau sem velja sér þetta starf.“ Hann segir að brunninn á Bræðraborgarstíg í júní 2020 hafi tekið verulega á hann en þar létust þrír og fjöldi fólks í mikilli hættu. Þá rakst hann á vegg og fór á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands „sem er vægast sagt frábær staður að vera á.“
Mynd: Skjáskot af mynd Vilhelms á vísi.is