Kimchi með gulrótum og eplum

Súrkál er ein besta matvaran til að viðhalda góðri þarmaflóru sem er mikilvæg til að viðhalda góðri líkamsstarfsemi. Hér má lesa um mikilvægi góðrar þarmaflóru. Það má nota allt það grænmeti eða ávexti í þetta sem manni finnst gott. Einnig er gott að nota í þetta ávexti eða grænmeti sem byrjað er að skemmast og koma þannig í veg fyrir matarsóun.

Þúr þarft:

  • 1 kg gulrætur
  • 2 hvítkál
  • 3 græn epli
  • 1 rauðrófa
  • 50 g engifer
  • 60 g sjávarsalt
  • 1 msk túrmerik
  • 1 tsk chili

Aðferð:

  1. Grænmetið og eplið er skortið smátt, blandað saman í skál. Blandan er svo nudduð og pressuð þangað til hún er orðin frekar blaut. Mér finnst best að nota matvinnsluvél til að ná að skera grænmetið og ávextina nógu smátt.
  2. Allt sett í krukku, passa að vökvinn nái yfir allt kálið pressa það niður af og til og látið standa í stofuhita í minnst 3 daga, lengur fyrir þá sem vilja meira súrt. Sjálfur vill ég hafa þetta vel súrt og hef þetta a.m.k. 2 vikur í stofuhita. Súrkálið geymist í kæli endalaust.
Heimildir

https://nlfi.is/heilsan/tharmafloran-og-heilsa/.
https://en.wikipedia.org/wiki/Kimchi

Related posts

Parmesanfiskur & Döðlusalat

Bakað blómkál með valhnetu gremolata

Plokkfiskur með sinnepi og osti