Gulrótasúpa með engifer og pekanhnetum úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.
Gulrótarsúpa:
- 500 g gulrætur
- 1 laukur
- 2-3 sellerístönglar
- 250 g rófur
- 4 hvítlauksrif
- 2 msk rifin engiferrót
- 1 lítri grænmetissoð
- 400 ml kókosmjólk
- ½ tsk cummin
- 1 tsk karrý
- hnefafylli ferskt kóríander
- Pipar og salt
- Pekanhnetur
Aðferð:
- Gulrætur og rófur skornar í bita og steiktar þar til þær hafa tekið lit. Því næst er að bæta við lauk, hvítlauk, kryddi og allt steikt í smá stund.
- Síðan er grænmetissoði hellt út í ásamt kókosmjólk og látið malla við vægan hita þangað til allt grænmetið er soðið.
- Maukað með töfrasprota eða sett í blandara ef þið viljið fá súpuna vel maukaða.
- Stráið yfir ristuðum og söxuðum pekanhnetum.
Verði ykkur að góðu!