Fiskréttur með blómkálssalati


Ragna Ingólfsdóttir badmintonhetja með meiru, deildi þessari gómsætu uppskrift með okkur. Uppskriftina miðar hún við tvo.

Þú þarft:

  • 500 g keila
  • Salt, pipar, turmerik
  • Smá ólívuolía
  • 1 dl hýðishrísgrjón
  • 5-6 dl vatn
  • ½-1 blómkálshaus
  • 4-6 konfekt tómatar
  • 1 þroskað avókadó
  • 100 g grísk jógúrt
  • Krydd eftir smekk; salt, karrý, papríka og cayenne pipar
  • 1-2 tsk tamari sósa
  • Vínber eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið keiluna í bita. Keilan er síðan marineruð í smá stund með salti, pipar, turmerik og smá ólívuolíu. Því næst er keilan sett í eldfast mót í 200 gráðu heitan ofn í um 20 mínútur. Ég nota síðan smá smjör með fiskinum.
  2. Sjóðið vatn, þegar suðan er komin upp látið þá hrísgrjónin út í vatnið og hrærið í. Lækkið hitann og látið grjónin sjóða í 15 mín. Smakkið grjónin, sjóðið þau lengur ef þau eru enn of hörð.
  3. Skerið blómkálið og tómatana smátt og setjið í skál. Maukið avókadóið. Hrærið saman grískri jógúrt, salti, karrý, cayenne pipar, papriku kryddi, tamarisósu og avókadóinu. Setjið sósuna saman við grænmetið. Skerið vínberin í tvennt og stráið yfir. 

Verði ykkur að góðu!

 
 

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli