„Framtíðarsýn stjórnvalda er að endurhæfing verði samþættur og sjálfsagður hluti heilbrigðisþjónustunnar, byggð á heildrænni sýn á færni og þátttöku, veitt á réttum tíma og á réttu þjónustustigi, með samfelldri þjónustu sem tekur mið
af þörfum hvers einstaklings,“ segir í Hvítbók Heilbrigðisráðuneytisins um endurhæfingarþjónustu á Íslandi.
„Svo þessi sýn nái fram að ganga þarf að styrkja forsendur endurhæfingarþjónustu á landsvísu. Það felur m.a. í sér að samræma mat á endurhæfingarþörf, efla gagnasöfnun og árangursmælingar, byggja upp öfluga stafræna innviði, tryggja nægilegan mannauð og þróa fjármögnun sem tekur mið af raunverulegri þjónustuþörf og árangri þjónustunnar. Þá þarf að efla samfellu milli þjónustustiga, styrkja samstarf þjónustuveitenda og tryggja að sérhæfð þekking og reynsla nýtist áfram sem grunnur að frekari þróun.“
Hvítbók um endurhæfingarþjónustu er nú til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda og þar er hægt að senda inn umsagnir. Hvítbókina sjálfa má nálgast hér.
„Íslensk endurhæfingarþjónusta byggir á sterkum faglegum grunni með fjölbreyttum úrræðum sem hafa að einhverju leyti þróast í takt við þarfir samfélagsins og öflugri sérfræðiþekkingu sem er mikilvægt að varðveita og efla,“ segir í Hvítbók Heilbrigðisráðuneytisins um endurhæfingaþjónustu á Íslandi. Skýrari stefnumótun og skipulag þurfi og aukna samfellu í þjónustu. Styrkja þurfi innviði og fjármögnun þurfi að vera markvissari. Þá segir að mikil sérfræðiþekking hafi byggst upp innan endurhæfingar og mikilvægt sé að framtíðaruppbygging þjónustunnar byggi á þeim styrkleikum.“
Mynd: Erwin Bosman Pixabay