Byggbollur með chili og rauðrófum

Byggbollur með chili og rauðrófum úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Gott að hafa með þessu karrýsteikt blómkál, hvítlauksristaðar kartöflur og sveppasósu eins og sjá má á myndinni.

Byggbollur:

  • 400 g soðið bygg
  • 300 g fínt rifin rauðrófa
  • 1-2 msk sambal oelek chilimauk
  • 1 rauðlaukur, smátt saxaður
  • 3 hvítlauksrif
  • 2 msk tómatpúrra
  • 2 sellerístilkar, smátt skornir
  • 2 msk mangó chutney
  • 1 tsk karrý
  • Þumall af engiferrót, fínt saxað
  • ½ tsk cumin
  • Hnefafylli saxaður kóríander
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Steikið lauk, rauðrófur, hvítlauk, sellerí, karrý, engifer og cumin í potti. Láta þetta malla við vægan hita í 10 mínútur.
  2. Bætið við kóríander, chutney, púrru, chilimauki og loks bygginu. Kælið.
  3. Mótið bollur og bakið í ofni við 180 gráður í 20-25 mínútur.

Verði ykkur að góðu!

Related posts

Hunangsristaðar gulrætur

Tælensk núðlusúpa

Eplabollakökur með grískri jógúrt og möndlumjöli