Sætkartöflusúpa með hnetusmjöri

Þessi sætkartöflusúpa er matarmikil, næringarrík, þykk og einstaklega bragðgóð. Ekki skemmir að hún er 100 prósent vegan.

Sætkartöflusúpa:

  • 2 stórar sætar kartöflur
  • 1  msk olía
  • 1 lítill laukur, saxaður
  • 1 stórt pressað hvítlauksrif
  • 750 ml tómatsafi
  • 120 g skorinn grænn chili
  • 2 tsk ferskur pressaður engifer
  • 1 tsk allspice krydd
  • 400 ml grænmetissoð
  • 120 g hnetusmjör
  • Pipar, til bragðbætingar ef þarf
  • Saxaður kóríander til skreytingar

Aðferð:

  1. Stingdu sætu kartöflunar nokkrum sinnum með gaffli. Bakið í ofni eða setjið í örbylgjuofn á hæstu stillingu og eldið í gegn í 7-10 mínútur. Kælið.
  2. Hitaðu laukinn í 2-4 mínútur á pönnu. Bættu við hvítlauknum og hitaðu í um 1 mínútu. Bættu við tómatsafa, chili, engifer og kryddi í pott. Láttu þetta malla í 10 mínútur.
  3. Skrældu kartöflunar og skerðu í munnbita. Bættu helmingnum í potttinn. Settu hinn helminginn í matvinnsluvél með soðinu og hnetusmjörinu. Blandaðu þar til það er orðið að góðu mauki. Þessu er svo bætt við í pottinn, hært vel í og allt hitað. Bættu vatni í súpuna ef þér finnst hún of þykk. Bragðbættu með pipar og skreyttu með koríander.

Related posts

Hunangs- og sinnepsgljáð sellerírót með linsum, fetaosti og mandarínu

Ofnbakað grasker með burrata og heslihnetusmjöri

Skyrbrauð með birki og hörfræjum