Indversk blómkálsúpa og naan brauð

Hér er uppskrift úr smiðju Halldórs yfirkokks á Heilsustofnun NLFÍ. Með þessari bragðgóðu súpu er gott að hafa naan brauð. Gott er að gera naan deigið kvöldið áður eða með sæmilegum fyrirvara samdægurs.

Þú þarft:

  • 1 laukur, saxaður
  • 2 hvítlauksrif, söxuð
  • 1 msk saxað engifer
  • 1/2 tsk túrmerik
  • 1 tsk cummin fræ
  • 1 tsk svört sinnepsfræ
  • 2 tsk möluð kóríander fræ
  • 300 g blómkál
  • 100 g kartöflur
  • 1 lítri grænmetissoð
  • 2 msk ferskt kóríander
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Laukur og hvítlaukur stektir í olíu í potti í 2-3 mínútur ásamt fræunum. Bætið grænmetinu við og soðinu. Látið sjóða í 20-30 mínútur
  2. Smakkið til með salti og pipar og fersku kóríander.

Naan brauð:

  • 1 kg heilhveiti
  • 1 lítri AB-mjólk
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi

Aðferð:

  1. Deigið er flatt út og penslað með bræddu smjöri með salti, pipar og/eða hvítlauk.
  2. Bakað í ofni við 200 gráður í 5-10 mínútur.

Halldór Steinsson matreiðslumaður á Heilsustofnun NLFÍ

Related posts

„Endurhæfing lykilþáttur í öflugu heilbrigðiskerfi“

Fjögurra ára þjónustusamningur

Starfsemi Heilsustofnunar tryggð til 2030